Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun tóku gildi í byrjun árs 2016. ÁTVR hefur unnið að því að innleiða þau í ferla fyrirtækisins, en um er að ræða víðtækustu markmið sem ríki heims hafa komið sér saman um. Innleiðing heimsmarkmiðana samþættast inn í vinnu ÁTVR og annarra áfengiseinkasala á Norðurlöndum. Stefnt er að því að tryggja velmegun og mannréttindi um allan heim fyrir árið 2030.
Sex markmið hafa verið áherslumarkmið hjá ÁTVR á árinu, en þau falla vel að áherslum fyrirtækisins. Heilsa og vellíðan (#3), jafnrétti kynjanna (#5), góð atvinna og hagvöxtur (#8), ábyrg neysla og framleiðsla (#12), aðgerðir í loftslagsmálum (#13) og líf á landi (#15).
Stöðugt verði unnið að því að fyrirtækið sé heilsueflandi vinnustaður.
ÁTVR framfylgi stefnu stjórnvalda um bætta lýðheilsu og samfélagslega ábyrgð í áfengis- og tóbaksmálum í sátt við samfélagið.
Hornsteinninn í samfélagsábyrgð fyrirtækisins er ábyrg sala áfengis. ÁTVR leiti leiða til að draga úr skaðlegum áhrifum áfengis, með eigin aðgerðum, áætlunum og í samvinnu við aðra.
Allt starfsfólk ÁTVR njóti sömu virðingar og hafi jafna stöðu innan fyrirtækisins. Jafnlaunavottun verði viðhaldið og unnið eftir jafnréttisáætlun fyrirtækisins.
Að engin mismunun eigi sér stað gagnvart fólki sem vinnur með söluvörur fyrirtækisins - hvar sem er í aðfangakeðjunni.
ÁTVR er eftirsóknarverður og samheldinn vinnustaður þar sem samskipti einkennast af jákvæðni, virðingu og trausti.
Áhersla er lögð á að starfsfólk geti vaxið í starfi og aflað sér þekkingar sem stuðlar að frábærri upplifun viðskiptavina.
Söluvörur fyrirtækisins séu framleiddar samkvæmt alþjóðlegum samþykktum og siðareglum og við aðstæður sem eru góðar bæði fyrir starfsfólk, umhverfi og samfélag.
Hvetjum viðskiptavini til að velja sjálfbæra vöru. Markmiðið fyrir 2030 er að meirihluti vöru sé vottaður af þriðja aðila. ÁTVR er þáttakandi í kerfi sem metur vottanir þriðja aðila.
Beint verði sjónum að umbúðum vöru og áhersla lögð á sjálfbært efnisval í vöruframboði og framkvæmdum. Hringrásarhagkerfið eflt með endurnotkun og endurvinnslu á úrgangi hjá Vínbúðunum. Einnig verði skoðað úrval af fylgihlutum og áhrif þeirra á umhverfið.
Loftslagsmarkmið ÁTVR til ársins 2030: 50% samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda í virðiskeðjunni miðað við árið 2020. En 99% kolefnislosunar liggur þar.
Vöruumbúðir, sérstaklega þungt einnota gler er stærsti losunarþátturinn vegna mikillar orku sem fer í að búa það til og markmiðið er að skipta sem mestu af því út fyrir sjálfbærari umbúðir.
Orkusparnaður framleiðanda sé í fyrirrúmi ásamt því að draga úr losun koltvísýrings (CO2). Sjónum verði beint að orkunotkun og áhersla lögð á endurnýjanlega orku í öllu framleiðsluferlinu ásamt sjálfbærum ræktunaraðferðum, t.d. bindingu kolefnis.
Meirihluti af vörum okkar er með sjálfbærnivottun, sem vottuð er af þriðja aðila. Við einbeitum okkur áfram að fjölbreyttu vöruúrvali, með áherslu á gæði og sjálfbærni í allri aðfangakeðjunni og stuðlum þannig að líffræðilegri fjölbreytni og heilbrigðum jarðvegi.
Skoða nánari upplýsingar um Heimsmarkmiðin.